Wenger var sendur upp í stúku í dag eftir að hafa vælt of mikið í dómurunum. Dómarinn var að vísu í hálfgerðu fríi þennan dag og ekki alveg með augun hjá sér. Ég var að þýða viðtal við Wenger þar sem hann talaði um að það væri svo mikil hrina framundan að hann yrði að hvíla leikmenn. Vandinn er að ég sé ekki að neitt lið geti hvílt suma leikmenn nema þá Chelsea og þó varla þeir; það gat ekki neitt fyrr en Drogba mætti á völlinn um daginn. MU voru eins og fífl í Köben án "gömlu mannanna"-það gat líka ekkert á móti Reading fyrr en Giggs kom inn á , Arsenal var datt niður eftir fyrstu fimm mínúturnar þar til Adebayor kom; náði að vísu að senda nokkra bolta á David James. Ég veit ekki með Liverpool. Það er varla að hægt sé að hvíla Gerrard. Þeir láta aldrei vesturbakkann.
Matt Taylor er frekar flottur. Hann er búinn að eiga tvö frábær mörk tvær helgar í röð.
Annars er alltaf langskemmtilegast að þýða viðtöl við SAF. Hann er örugglega eini maðurinn á Bretlandi sem segir enn þá "Goodness gracious me". Ég hef ríka tilhneigingu til að ýkja í þýðingunni frekar en að draga úr. Hann sagði að þegar Curbishley hefði tekið við Charlton hefðu höfuðstöðvarnar verið í Portakabin sem eru einhverskonar forsmíðaðar einingar; ég man að ég var stundum í þannig skólastofu þegar ég var í SCOT. Ég varð að þýða það sem "skúr" því mér fannst ljóst að SAF meinti það þannig. Annað sem er gott við hann í viðtölum er að honum finnst blaða-og fréttamenn vera algjör fífl og er ekkert að leyna því ef honum finnst spurningin heimskuleg. En Benitez er sá viðkunnanlegasti. Afskaplega ljúfur við blaðamennina þó þeir séu að spyrja hann fáránlegra spurninga.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
HL er að koma, þá byrja jólin :D
Post a Comment