Monday, December 25, 2006

Zidane hvað?

Það var Liliam Thuram sem vann HM fyrir Frakka. Kannski fyrir utan þessi tvö mörk Zidane í úrslitaleiknum.

Ég hef verið að horfa á bráðskemmtilega þætti um HM á Sýn núna yfir hátíðina. Ég hef komist að eftirfarandi niðurstöðum:

Rudi Völler er asnalegasti knattspyrnumaður sem uppi hefur verið og á þó við harða samkeppni að etja.

Argentínumenn eru óðir hundar.
Brasilíumenn eru yfirnáttúrulegir.
Landsliðsþjálfari Þjóðverja er alltaf harkalega gagnrýndur fyrir hvert HM-mót.
Englendingar...óþarfi að ræða það. En þeir kunna að verjast þegar þeir eru orðnir tíu.

Fyrsti HM-leikurinn sem ég man eftir að hafa horft á var Argentína-England 1998. Hann var ekki leiðinlegur og gaman að rifja hann upp. Svo mundi ég vel eftir Danmörk-Brasilia 1998 . Bráðskemmtilegur leikur sem ég horfði á á Glaumbar. Svo vaknaði ég á ganginum heima hjá mér og komst að því eftir nána skoðun á debetkortinu að ég hafði farið heim um miðnætti eftir klukkutíma snakebitedrykkju.

No comments: