Ég sá í Ferguson/Shankley bókinni að Matthew Simmons, sem verður að eilífu frægur fyrir að hafa verið laminn af Cantona segist hafa sagt við EC þegar hann var að ganga af velli: "Excuse me, sir. I thought you weren't as good as you could be, what?". Mjög líklegt.
Annars sá ég samræður á komenntakerfi bloggs á Guardian. Umræðan var um hin skemmtilegu slagsmál Kínverja og QPR og einn kommentaði að það minnti hann á chavball.
A: "What is chavball?"
B: sagði: "It is..." svo kom einhver stuttleg útskýring.
A: sagði: "Your explanation is nonsense. Good day to you sir."
B:"Why, thank you. And good day to you, sir. "
Mér finnst bara eitthvað fallegt við þetta árið 2006.
Friday, February 9, 2007
Queens Park Strangers
Besta frétt vikunnar er auðvitað þessi með heimsókn kínverska U-23 landsliðsins. Fyrst fannst þeim æfingarsvæðið hjá Chelsea ömurlegt og lentu svo í slagsmálum við QPR. Snillingar. Þeir eiga greinilega allir Cantona-diskinn því þeir tóku QPR kung-fu style. Ég held samt að Dong hafi ekki verið með.
Thursday, February 8, 2007
Ferguson og Shankly
Rottweilerhundurinn og Labradorinn; ég held samt að Shankly hafi náð að sjarmera alla svo mikið að fólk hafi ekki áttað sig á að hann var úlfur í sauðargæru. Hann var alveg jafn miskunnarlaus og SAF en kunni að breiða yfir það. Hann er auðvitað frægur fyrir að hafa tvisvar boðið konunni sinni út og í bæði skiptin fór hann með hana á leiki. En mér skilst á bókinni að Arsene "I didn't see it" Wenger sé enn verri. Hann verður alltaf að vera kominn heim klukkan tíu til að horfa á fréttir úr boltanum.
Það eru ekki mjög fagrar lýsingar á Ferguson í bókinni. Hann er algjör motherfucker en hann hefur efni á því. Hann slær Mourinho og Shankly við vegna þess að hans lið hafa alltaf spilað fallegri fótbolta (skilst mér, ég veit mest lítið um þetta af eigin reynslu). Wenger er jafningi hans að því leyti en sama hvað má hrósa Wenger fyrir frábæran árangur hjá Arsenal og þar áður hjá Monaco og í Japan þá hefur hann aldrei séð til þess að lið á við Aberdeen ynni bikar í Evrópu. Það var það sem mér fannst mest impressive og það sem ég hafði ekki vitað áður. Aberdeen.

Subscribe to:
Comments (Atom)