Rottweilerhundurinn og Labradorinn; ég held samt að Shankly hafi náð að sjarmera alla svo mikið að fólk hafi ekki áttað sig á að hann var úlfur í sauðargæru. Hann var alveg jafn miskunnarlaus og SAF en kunni að breiða yfir það. Hann er auðvitað frægur fyrir að hafa tvisvar boðið konunni sinni út og í bæði skiptin fór hann með hana á leiki. En mér skilst á bókinni að Arsene "I didn't see it" Wenger sé enn verri. Hann verður alltaf að vera kominn heim klukkan tíu til að horfa á fréttir úr boltanum.
Það eru ekki mjög fagrar lýsingar á Ferguson í bókinni. Hann er algjör motherfucker en hann hefur efni á því. Hann slær Mourinho og Shankly við vegna þess að hans lið hafa alltaf spilað fallegri fótbolta (skilst mér, ég veit mest lítið um þetta af eigin reynslu). Wenger er jafningi hans að því leyti en sama hvað má hrósa Wenger fyrir frábæran árangur hjá Arsenal og þar áður hjá Monaco og í Japan þá hefur hann aldrei séð til þess að lið á við Aberdeen ynni bikar í Evrópu. Það var það sem mér fannst mest impressive og það sem ég hafði ekki vitað áður. Aberdeen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment