Wednesday, December 27, 2006
Mínir menn
Mínir uppáhaldsmenn um helgina: Ronaldo sem skoraði mark í fyrsta sinn sem hann snerti boltann; varamaðurinn hjá Watford sem fékk gult spjald þar sem hann sat á bekknum og Ashley Cole. Snillingur. Og Reading átti eitt skot á markið.
Monday, December 25, 2006
Zidane hvað?
Það var Liliam Thuram sem vann HM fyrir Frakka. Kannski fyrir utan þessi tvö mörk Zidane í úrslitaleiknum.
Ég hef verið að horfa á bráðskemmtilega þætti um HM á Sýn núna yfir hátíðina. Ég hef komist að eftirfarandi niðurstöðum:
Rudi Völler er asnalegasti knattspyrnumaður sem uppi hefur verið og á þó við harða samkeppni að etja.
Argentínumenn eru óðir hundar.
Brasilíumenn eru yfirnáttúrulegir.
Landsliðsþjálfari Þjóðverja er alltaf harkalega gagnrýndur fyrir hvert HM-mót.
Englendingar...óþarfi að ræða það. En þeir kunna að verjast þegar þeir eru orðnir tíu.
Fyrsti HM-leikurinn sem ég man eftir að hafa horft á var Argentína-England 1998. Hann var ekki leiðinlegur og gaman að rifja hann upp. Svo mundi ég vel eftir Danmörk-Brasilia 1998 . Bráðskemmtilegur leikur sem ég horfði á á Glaumbar. Svo vaknaði ég á ganginum heima hjá mér og komst að því eftir nána skoðun á debetkortinu að ég hafði farið heim um miðnætti eftir klukkutíma snakebitedrykkju.

Thursday, December 21, 2006
Af argentínskum fótbolta
Þegar Evita Peron tók við völdum var allt í rúst í Argentínu, sem átti að halda heimsmeistaramótið 1978. Hún gerði bara allt verra og það endaði með að herinn tók völdin. Það vantaði velli, vegi og allt til að halda mótið. Herforingjarnir sögðu öllum að herða sultarólina, lækkuðu laun og ákváðu að setja svona 700 milljónir dala í HM. Stofnuð var HM-nefnd undir stjórn Omar Actis hershöfðingja. Á leiðinni á fyrsta blaðamannafundinn var Actis skotinn af leyniskyttu. Herforingjarnir kenndu skæruliðum um og drápu nokkra usual suspects en líklegast er talið að eftirmaður hans sem formaður nefndarinnar hafi látið drepa hann; Carlos Alberto Lacoste sem varð alveg ótrúlega ríkur á því að þiggja mútugreiðslur fyrir alla samninga í tengslum við HM.
Af fótbolta í Chile
Pinochet, megi hann brenna í helvíti um alla eilífð, notaði gjarnan fótboltavelli til að pynta fólk og drepa. Tólf þúsund manns var troðið inn í Estadio Nacional og þeir pyntaðir þar. Herinn spilaði Bítlana á fullum styrk til að yfirgnæfa öskrin.
Eins og gefur að skilja gekk fótboltinn í Chile ekkert sérstaklega vel við þessar aðstæður. Í september 1989 keppti Chilei við Brasilíu og réðu úrslit leiksins því hvort Chile kæmist í heimsmeistarakeppnina. Chile var eitt núll undir og staðan var ekki góð þegar kínverji (ekki Kínverji) lenti á Roberto Rojas markverði; blóðið streymdi úr höfði hans og leikmennirnir fóru að slást. Að lokum gekk lið Chile af velli. En í rauninni hafði Rojas séð kínverjann fljúga í áttina til sín, dregið rakblað úr hanskanum um leið og hann henti sér niður og skorið í sig í von um að leikurinn yrði endurtekinn. Brasilíu var dæmdur sigur, Chile bannað að taka þátt í næstu tveimur heimsmeistarakeppnum, Rojas fór í ævilangt bann og konan sem henti kínverjanum sat fyrir í Playboy í Brasilíu.

Wednesday, December 20, 2006
Aumingja Poll
Guardian var að velja tíu bestu söngva aðdáenda í ár. Hér eru dæmi.
"All bling and Burberry, high teenage pregnancy, no father on the scene, all robbing cash machines!"A chant that Sittingbourne fans sing to the local rivals Chatham (to the tune of Verdi's La Donna e Mobile).
"Mourinho are you listening, you'd better keep our trophy glistening, coz we'll be back in May to take it away, walking in a Fergie Wonderland!"Manchester United fans taunt Chelsea to the tune of Winter Wonderland.
"World Cup - and you ****** it up!"All four sides of the ground during Everton-Arsenal game, including away fans, chanting at Graham Poll, who showed three yellow cards to the same player in the World Cup.

Saturday, December 16, 2006
Shotgun shack
Wenger var sendur upp í stúku í dag eftir að hafa vælt of mikið í dómurunum. Dómarinn var að vísu í hálfgerðu fríi þennan dag og ekki alveg með augun hjá sér. Ég var að þýða viðtal við Wenger þar sem hann talaði um að það væri svo mikil hrina framundan að hann yrði að hvíla leikmenn. Vandinn er að ég sé ekki að neitt lið geti hvílt suma leikmenn nema þá Chelsea og þó varla þeir; það gat ekki neitt fyrr en Drogba mætti á völlinn um daginn. MU voru eins og fífl í Köben án "gömlu mannanna"-það gat líka ekkert á móti Reading fyrr en Giggs kom inn á , Arsenal var datt niður eftir fyrstu fimm mínúturnar þar til Adebayor kom; náði að vísu að senda nokkra bolta á David James. Ég veit ekki með Liverpool. Það er varla að hægt sé að hvíla Gerrard. Þeir láta aldrei vesturbakkann.
Matt Taylor er frekar flottur. Hann er búinn að eiga tvö frábær mörk tvær helgar í röð.
Annars er alltaf langskemmtilegast að þýða viðtöl við SAF. Hann er örugglega eini maðurinn á Bretlandi sem segir enn þá "Goodness gracious me". Ég hef ríka tilhneigingu til að ýkja í þýðingunni frekar en að draga úr. Hann sagði að þegar Curbishley hefði tekið við Charlton hefðu höfuðstöðvarnar verið í Portakabin sem eru einhverskonar forsmíðaðar einingar; ég man að ég var stundum í þannig skólastofu þegar ég var í SCOT. Ég varð að þýða það sem "skúr" því mér fannst ljóst að SAF meinti það þannig. Annað sem er gott við hann í viðtölum er að honum finnst blaða-og fréttamenn vera algjör fífl og er ekkert að leyna því ef honum finnst spurningin heimskuleg. En Benitez er sá viðkunnanlegasti. Afskaplega ljúfur við blaðamennina þó þeir séu að spyrja hann fáránlegra spurninga.

Hver skyldi fá kortin?
Mér fannst mjög fyndið að Curbishley hringdi í Alex Ferguson og spurði hann ráða; kallinn sagði honum bara að skella sér á þetta en annars hafði SAF engan tíma til að tala við AC því hann var að skrifa jólakort.
Arsenal 2 Portsmouth 2.
Ég horfði á fyrsta diskinn í hinu gríðarlega mikla Cantonasafni. Ég hef aldrei séð jafn mikinn svala og þegar EC tók vítaspyrnur. Þeir sýndu að vísu ekki þær sem hann brenndi af en þær hljóta að hafa verið einhverjar; en það var aðallega hvernig hann bar sig að á punktinum sem vakti aðdáun. Frakkinn tjáði sig á mjög franskan hátt um lífið og tilveruna; það má þakka fyrir að hann hafi ekki jarðað sögnina eins og franski prófessorinn um daginn. Honum fannst að sjálfsögðu að fótbolti væri á við aðrar listir og sagðist vera mikill aðdáandi "automatic writing" eins og súrrealistarnir stunduðu. Það fannst honum vera hin sanna list bókmenntanna.
Friday, December 15, 2006
Undir rúmið?
Stal þessari ágætu tilvitnun úr "The Fiver" í Guardian.
QUOTE OF THE DAY"He's his wife's puppy. He did not behave manly. A real Milanista anda real man would have never behaved this way. In my home I am the one who takes decisions and rules. But when Sheva's wife calls him and sends him under the bed, he obeys just like a puppy" - is it just us,or does anyone else think Milan owner Silvio Berlusconi might havethe hots for Kristen Shevchenko? Og hver getur láð honum það? http://image.sportscn.com/center/stock/2003/11/11/1068512448_b.jpg
Annars er Egill Ólafsson stórsöngvari svar Íslands við Silvio. Báðir hafa haft það að atvinnu að syngja í farþegaskipum, báðir hafa verið vinir forsætisráðherra... er, þá er það eiginlega búið. Hann er eiginlega ekki svar Íslands við Silvio.

Monday, December 11, 2006
Falllistamaðurinn
Mig skortir orð til að lýsa því hvað Didier Drogba er flottur. Það að hann skorar mörk svona oft er aukaatriði; það sem skiptir hann verulegu máli er að láta sig falla á sem fegurstan hátt. Það eina sem ég man eftir leik Barcelona og Chelsea núna eru kollhnísarnir sem hann fór og sem hann tók örlítið hlé á til að skora markið sem skipti öllu máli; í leiknum gegn Arsenal var hann hápunktur skemmtunarinnar. Hver annar en snillingur hefði látið sér detta í hug að pirra Lehmann (sem er greinilega auðvelt að pirra) þar til hann lamdi hann svo hann gæti dottið svona fallega. Og hann uppgötvaði sálufélaga sinn þarna í markinu því Lehmann datt næstum því jafn vel og Drogba.
En talandi um leikræna tilburði. Ég er að nálgast síðu 650 í "The Ball is Round". Síðustu síður hef ég verið að lesa um ítalskan fótbolta síðustu áratugina og þá sérstaklega baráttu norður og suðurs. Mið-Ítalía hefur alltaf átt bestu liðin, norðan frá Mílanó og suður til Rómar; nyrst þóttu vera bændur sem hokruðu við landamæri Sviss og Austurríkis og sunnar voru aumingjarnir í Napólí sem lifðu á styrkjum og svindluðu á kerfinu eins og íbúar Liverpool (eða það segir Boris Johnson og ef ég á ekki að trúa þeim stjórnmálamanni heimsins sem er með flottasta hárið þá veit ég ekki hverjum ég á að trúa). En allt í einu reis upp lið í Verona sem kenndi sig við Grikkland og var með danskan striker; í því kristallaðist aðskilnaðarstefna norðurhlutans -þetta er einhverskonar Skotland Ítalíu greinilega. Mér fannst best að þegar lið Napólí kom norður þá var tekið á móti þeim með borðum sem á stóð: "Velkomnir til Ítalíu."
En Napólí var alltaf þekkt fyrir aumingjaskap og mafíustarfsemi þar til þeir fóru að leita í sófunum heima hjá sér og öngluðu saman nægilega miklu til að kaupa einn leikmann, sjálfan Maradona. Hann var að sjálfsögðu fluttur á völlinn í þyrlu og tugir þúsunda borguðu sig inn til að sjá hann leika einan með boltann í hálftíma. Hann reyndist nægur drifkraftur til að liðið ynni deildina í fyrsta sinn og sjá; borgin fór á vikufyllerí og í dag eru þar þúsundir drengja sem heita Diego vegna þess að þeir voru getnir þessa viku.
AC Milan var í tómu tjóni þar til bjargvætturinn Silvio kom og þar komu þyrlur líka við sögu. Hann tók við liðinu og flutti það í þyrlum á völlinn um haustið meðan "Valkyrjureiðin" var spiluð; ef menn átta sig ekki á hvað þetta var ósmekklegt þá er það sama tónlist og var notuð í "napalm in the morning" árásinni á þorpið í "Apocalypse".... þessi koma liðsins var síðan sýnd endalaust í sjónvarpsstöðvunum hans. Silvio átti auðvitað fjöldamargar sjónvarpsstöðvar og stærstu auglýsingastofu landsins. Bannað var á Ítalíu að eiga sjónvarpsstöðvar sem næðu til alls landsins fyrir utan þessar þrjár sem flokkarnir þrír höfðu skipt á milli sín; Silvio stofnaði bara stöð í hverjum einasta bæ og fór svo að sýna sömu dagskrána á þeim öllum. Hann var kærður fyrir þetta en þar sem hann var alltaf í sólbaði með Craxi forsætisráðherra frestaði Craxi því að eitthvað yrði gert í málinu í tvö ár; þá voru allir búnir að gleyma þessu. Silvio vissi sem var að besta leiðin til að fá fólk til að kaupa áskriftir var a sýna fótbolta og því gerði hann það stanslaust.

Saturday, December 9, 2006
Subscribe to:
Comments (Atom)