Thursday, December 21, 2006

Af argentínskum fótbolta

Þegar Evita Peron tók við völdum var allt í rúst í Argentínu, sem átti að halda heimsmeistaramótið 1978. Hún gerði bara allt verra og það endaði með að herinn tók völdin. Það vantaði velli, vegi og allt til að halda mótið. Herforingjarnir sögðu öllum að herða sultarólina, lækkuðu laun og ákváðu að setja svona 700 milljónir dala í HM. Stofnuð var HM-nefnd undir stjórn Omar Actis hershöfðingja. Á leiðinni á fyrsta blaðamannafundinn var Actis skotinn af leyniskyttu. Herforingjarnir kenndu skæruliðum um og drápu nokkra usual suspects en líklegast er talið að eftirmaður hans sem formaður nefndarinnar hafi látið drepa hann; Carlos Alberto Lacoste sem varð alveg ótrúlega ríkur á því að þiggja mútugreiðslur fyrir alla samninga í tengslum við HM.

No comments: