Pinochet, megi hann brenna í helvíti um alla eilífð, notaði gjarnan fótboltavelli til að pynta fólk og drepa. Tólf þúsund manns var troðið inn í Estadio Nacional og þeir pyntaðir þar. Herinn spilaði Bítlana á fullum styrk til að yfirgnæfa öskrin.
Eins og gefur að skilja gekk fótboltinn í Chile ekkert sérstaklega vel við þessar aðstæður. Í september 1989 keppti Chilei við Brasilíu og réðu úrslit leiksins því hvort Chile kæmist í heimsmeistarakeppnina. Chile var eitt núll undir og staðan var ekki góð þegar kínverji (ekki Kínverji) lenti á Roberto Rojas markverði; blóðið streymdi úr höfði hans og leikmennirnir fóru að slást. Að lokum gekk lið Chile af velli. En í rauninni hafði Rojas séð kínverjann fljúga í áttina til sín, dregið rakblað úr hanskanum um leið og hann henti sér niður og skorið í sig í von um að leikurinn yrði endurtekinn. Brasilíu var dæmdur sigur, Chile bannað að taka þátt í næstu tveimur heimsmeistarakeppnum, Rojas fór í ævilangt bann og konan sem henti kínverjanum sat fyrir í Playboy í Brasilíu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment