Saturday, December 16, 2006

Arsenal 2 Portsmouth 2.

Ég horfði á fyrsta diskinn í hinu gríðarlega mikla Cantonasafni. Ég hef aldrei séð jafn mikinn svala og þegar EC tók vítaspyrnur. Þeir sýndu að vísu ekki þær sem hann brenndi af en þær hljóta að hafa verið einhverjar; en það var aðallega hvernig hann bar sig að á punktinum sem vakti aðdáun. Frakkinn tjáði sig á mjög franskan hátt um lífið og tilveruna; það má þakka fyrir að hann hafi ekki jarðað sögnina eins og franski prófessorinn um daginn. Honum fannst að sjálfsögðu að fótbolti væri á við aðrar listir og sagðist vera mikill aðdáandi "automatic writing" eins og súrrealistarnir stunduðu. Það fannst honum vera hin sanna list bókmenntanna.

No comments: