Sunday, January 7, 2007
Eða er þetta bara eitthvað bull
Í hvaða stíl spilar Liverpool? Mér finnst ég sjá ákveðinn stíl hjá United sem er kannski undir einhverjum áhrifum frá Wenger-ball, enda veit ég ekki hvernig United spilaði áður en þó er meira um hlaup upp kantana og beinar fyrirgjafir en hjá Arsenal sem gerir aldrei neitt án þess að taka minnst tíu sendingar í það (nema náttúrlega Henry sem er eini maðurinn sem ég hef séð gefa á sjálfan sig). Arsenal er sem sagt með mjög greinilegan stíl og Chelsea með þessar kanónur á miðjunni sem skjóta í stöngina en ég átta mig ekki alveg á Liverpool. Kannski er það vegna þess að ég hef aldrei séð sama liðið tvisvar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Þeir virðast einbeita sér meira að því að tækla andstæðinginn, helst meiða hann, bíða svo bara eftir því að Gerrard skjóti frá miðju og skori.
Þeir eru með einkar gott unglingalið skilst mér. Ha ha.
AHAHAHAHAHAHAAAAAAHAHAHAHA BUUUURN!
"Vandamálið var að við fengum á okkur eins mörg mörk og við gerðum," sagði Benitez.
Ef hann hættir þessu ekki þá DEY ég úr hlátri!!!
Post a Comment